Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða starfsfólk í hlutastörf með vinnutíma eftir hádegi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Leikskólinn Ársalir er 11 deilda leikskóli með starfsstöðvar á tveimur stöðum á Sauðárkróki. Í leikskólanum eru tæplega 200 börn og þar starfa um 65 manns, sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af vinnu með börnum. Einkunnarrorð leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Vellíðan. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðunni www.arsalir.leikskolinn.is
Helstu verkefni eru:
Hæfniskröfur:
Starfsmaður leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Fríðindi í starfi: Undirbúningstími fyrir leikskólaliða og ófaglærða sem starfað hafa í þrjú ár eða lengur. Styttri vinnuvika. Frítt fæði. Heilsueflingarstyrkur eftir sex mánuði í starfi. Stuðningur við starfsmenn sem stunda nám í leikskólakennarafræðum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um störfin veitir: Sólveig Arna Ingólfsdóttir, leikskólastjóri, í síma 455 6090 eða solveigarna@skagafjordur.is og Berglind Guðmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, berglindg@skagafjordur.is.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.