Skagafjordur

Leikskólinn Ársalir

Skagafjordur  •  Sauðárkrókur, IS (Onsite)  •  2 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða í nokkrar stöður leikskólakennara. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um nokkrar stöður er að ræða í 100% starfshlutfalli eða eftir samkomulagi. Bæði er um tímabundnar stöður að ræða sem og framtíðarstörf. Ef ekki berast umsóknir frá einstaklingum sem uppfylla menntunarkröfur verður skoðað að ráða leiðbeinendur.

Leikskólinn Ársalir er 11 deilda leikskóli með starfsstöðvar á tveimur stöðum á Sauðárkróki. Í leikskólanum eru tæplega 200 börn og þar starfa um 65 manns, sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af vinnu með börnum. Einkunnarrorð leikskólans eru: Vinátta - Virðing - Vellíðan. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðunni www.arsalir.leikskolinn.is

Helstu verkefni eru:

  • Vinna að uppeldi og menntun barna.
  • Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Taka þátt í gerð skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinna í nánu samstarfsi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu.
  • Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingum.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér áherslur skólans og séu tilbúnir að vinna eftir þeim.
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.

Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.

Fríðindi í starfi: Undirbúningstími fyrir leikskólaliða og ófaglærða sem starfað hafa í þrjú ár eða lengur. Styttri vinnuvika. Frítt fæði. Heilsueflingarstyrkur eftir sex mánuði í starfi. Stuðningur við starfsmenn sem stunda nám í leikskólakennarafræðum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin eru veittar með því að senda póst á netfangið arsalir@skagafjordur.is.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media