Akureyrarbær

Leikskólinn Klappir: Leikskólakennari eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  23 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Klappir óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (B.Ed, Bs eða B.A) sem nýtist í starfi í 100% ótímabundna stöðu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 4. ágúst eða eftir samkomulagi.

Í Klöppum er lögð áhersla á nám í gegnum leik og sérstök áhersla er á læsi og stærðfræði í daglegu starfi. Leitast er við að virkja sjálfsprottinn áhuga nemenda í gegnum fjölbreyttan efnivið. Nemendur eru hvattir til sjálfshjálpar og sjálfstæðis með það að markmiði að efla sjálfsmynd þeirra og sjálfstraust.

Sérstakar áherslur skólans eru: Heilsueflandi skóli, SMT, Barnasáttmálinn og umhverfismennt

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn Klappir - Akureyri

Næsti yfirmaður er deildarstjóri.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Umsækjandi þarf að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (BS, BA, B.Ed.) sem nýtist í starfi skólans.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Reynsla af því að nota SMT í skólastarfi er kostur.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingi sem býr yfir metnaði við mótun skólastarfsins
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Leikskólakennari starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og menntastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í netfanginu: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hafdís Ólafsdóttir, skólastjóri í síma 414-3161, netfang: hafdiso@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown