Akureyrarbær

Leikskólinn Kiðagil: Starfsmaður í sérkennsluteymi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  23 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Kiðagil óskar eftir að ráða iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, leikskólakennara/sérkennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um 100% tímabundna stöðu í eitt ár í sérkennsluteymi er að ræða.

Æskileg starfsbyrjun er ágúst 2026.

Daglegt líf á Kiðagili snýst um kennslu í gegnum leik, athafnir, verkefni og samskipti sem miða að því að gefa börnunum fjölbreytt tækifæri til að læra, helst með því að uppgötva og reyna sjálf en stundum með dyggri aðstoð annarra.

Einkunnarorð skólans eru „ fagmennska, virðing, leikur og læsi“.

Áherslur Kiðagils eru:
Lestur, unnið er með Leikskólalæsi á öllum deildum, þar sem áhersla er lög á leiki með bókstafi, rím og hljóð.
Umhverfisvernd, skólinn er umhverfisvænn og starfar samkvæmt því og skólinn starfar eftir SMT-styðjandi skólafærni.

Ertu hugmyndaríkur, lausnamiðaður, jákvæður og duglegur einstaklingur með dygga þjónustulund og vilt vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://kida.is

Helstu verkefni eru:

  • Veitir börnum sem þurfa viðbótarþjónustu sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn og situr fundi og viðtöl með þeim.
  • Vinnur í nánu samstarfi í sérkennsluteymi leikskólans undir stjórn sérkennslustjóra.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið iðjuþjálfanámi, þroskaþjálfanámi, leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi.
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, faglega teymisvinnu og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Reynsla af starfi í viðbótarþjónustu með börnum er kostur.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inda Björk Gunnarsdóttir, skólastjóri í

síma 414-3770/8986313, netfang: indabjork@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown