Akureyrarbær

Leikskólinn Hulduheimar - Holtakot: Starfsmaður í leikskóla

Akureyrarbær  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Hulduheimar - Holtakot óskar eftir að ráða starfsmann tímabundið í 60% stöðu. Vinnutími er frá kl. 11:30-16:15 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Einkunnarorð skólans eru: Vellíðan – Virkni – Velferð

Helstu áherslur skólans:

  • Lífsleiknin er rauði þráðurinn í gegnum starfið okkar. Börnin leika og læra í gegnum fjölbreyttan skapandi efnivið.
  • Útinám - öll börnin fá að kynnast nærumhverfinu og náttúrunni í kringum skólann.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn akureyri.is/hulduheimar

Helstu verkefni:

  • Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast með velferð þeirra og hlúa að þeim í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín.
  • Starfa samkvæmt námskrá skólans og sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem deildarstjóri eða skólastjóri felur honum.
  • Taka þátt í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.

Hæfniskröfur:

  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi.
  • Reynsla af vinnu í leikskóla er kostur.
  • Mikilvægt að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði og sé tilbúinn að taka þátt í skemmtilegu og krefjandi starfi með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur og tilbúin að ganga í fjölbreytt störf innan skólans.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Starfsmaður leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, öðrum lögum er við aiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum og starfsmannastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Snjólaug Brjánsdóttir skólastjóri í síma 462-3034, netfang snjolaug@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown