Akureyrarbær

Leikskólinn Hagasteinn: Starfsfólk í leikskóla

Akureyrarbær  •  Onsite  •  5 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða starfsfólk. Um er að ræða 100% ótímabundnar stöður.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Í leikskólanum Hagasteini er lögð áhersla á jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms- og starfsumhverfi.

Sýn okkar er faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Einkunnarorð skólans eru „Hæglæti – Hugrekki – Hlýja“.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn: https://www.akureyri.is/hagasteinn

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.

Helstu verkefni eru:

  • Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildastjóra og eða skólastjóra.
  • Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Hæfniskröfur:

  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Viðkomandi þurfa að vera sveigjanlegir í starfi og tilbúnir að ganga í ýmis störf.
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynlegt.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Starfsmaður leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, starfsmannastefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir Launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Stella Bryndís Karlsdóttir í síma 669-4009 eða í tölvupósti stellabk@akureyri.is eða Vala Björt Harðardóttir aðstoðarleikskólastjóri í tölvupósti valabjort@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown