Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða starfsfólk. Um er að ræða 60-100% ótímabundnar stöður.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms- og starfsumhverfi.
Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.
S ýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.
Einkunnarorð skólans eru: Hæglæti – Hugrekki - Hlýja
Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.
Helstu verkefni eru:
Hæfniskröfur:
Starfsmaður leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, starfsmannastefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Stella Bryndís Karlsdóttir í síma 669-4009 eða í tölvupósti: stellabk@akureyri.is eða Vala Björt Harðardóttir aðstoðarleikskólastjóri í tölvupósti valabjort@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026.
