Akureyrarbær

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir

Akureyrarbær  •  Onsite  •  4 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Hagasteinn óskar eftir að ráða kennara eða starfsmenn með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi skólans (B.Ed, BS eða BA) í 80 til 100% ótímabundnar stöður.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti og að skapa gott náms - og starfsumhverfi. Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sérstakar áherslur skólans eru: Jákvæður agi, hæglæti, barnasáttmálinn, umhverfismennt og vellíðan.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Einkunnarorð skólans eru: Hæglæti – Hugrekki - Hlýja

Næsti yfirmaður er deildarstjóri.

Helstu verkefni eru:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum skólans.
  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg.
  • Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum.
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
  • Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga, er æskileg en þó ekki skilyrði.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Kennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stella Bryndís Karlsdóttir skólastjóri í síma 414-8901, netfang: stellabk@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown