Skagafjordur

Leikskólinn Birkilundur

Skagafjordur  •  Onsite  •  3 months ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu vera hluti af skemmtilegum hópi starfsfólks í Leikskólanum Birkilundi?

Leikskólinn Birkilundur í Varmahlíð óskar eftir að ráða í nokkrar stöður leikskólakennara m.a. vegna stækkunar og flutninga leikskólans í nýtt húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun/reynslu sem nýtist í starfið.

Í Birkilundi er lögð áhersla á málörvun og félagsfærni. Birkilundur er í samstarfsverkefni með Varmahlíðarskóla þar sem áhersla er lögð á félagsleg samskipti. Í leikskólanum Birkilundi eru fjórar deildir fyrir börn á aldrinum 1-6 ára.

Helstu verkefni eru:

  • Vinna að uppeldi og menntun barna.
  • Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sitja fundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingum.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér áherslur skólans og séu tilbúnir að vinna eftir þeim.
  • Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.

Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Arnljótsdóttir, leikskólastjóri; birkilundur@skagafjordur.is, 846 9014.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins: www.skagafjordur.is. Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media