Garðabær

Leikskólinn Akrar - deildarstjóri

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  4 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að deildarstjóra í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ert til í að vinna með ólíkum einstaklingum eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.

Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegnum leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi. Á Ökrum vinnum við eftir Uppeldi til ábyrgðar (uppbyggingastefnan). Uppeldi til ábyrgðar snýst að mestu um samskipti; ef samskipti eru góð og gefandi þá má byggja á þeim árangursríkt nám. Þetta er aðferð við að kenna sjálfstjórn og sjálfsaga og styrkja einstaklinga í því að læra af mistökum.

Viltu vera með okkur í liði?

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Ert hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Berð ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sérð um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntun, hæfni og reynsla

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Á Ökrum er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna vinnustyttingar starfsfólks
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar

* Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026. Staðan er laus eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Guðrún V. Ásgeirsdóttir leikskólastjóri í síma 512-1530 eða með því að senda tölvupóst á gudrunas@akrar.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown