Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Ægisborg lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.
Ægisborg er fjögurra deilda leikskóli með 75 börnum. Leikskólinn stendur við Ægissíðu 104 í Vesturbænum. Gott útivistarsvæði er í nágrenni leikskólans.
Áhersluþættir leikskólans eru leikveröld barna, sjálfsefling, málrækt og hreyfing.
Í leikskólanum er lögð áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Helstu áherslur starfsins hnitast í kring um leik, læsi, hreyfingu og lýðræði og eru kjörorð leikskólans virðing, gleði og umhyggja.
Leikur er þungamiðja starfsins og hvort tveggja umhverfi og dagskipulag leikskólans styður við leikveröld barna. Hlutverk kennara er m.a. að koma auga á og fjölga lærdómstækifærum í leikaðstæðum og efla þátttöku barna í skólasamfélagi og styrkja forvitni þeirra og sköpunargleði.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari og kynningarbréf þar sem fram koma helstu ástæður þess að sótt er um starfið.
Á grundvelli samþykktar fyrir skóla- og frístundaráð ræður sviðsstjóri í starf leikskóla og um kjör fer samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Um er að ræða 100% stöðu sem er laus frá 1. janúar 2027.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Helga Pálmadóttir, deildarstjóri á skrifstofu leikskólamála skóla- og frístundasviðs, á netfanginu elisabet.h.palmadottir@reykjavik.is eða í síma 6939802.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.