Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Vesturborg lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.
Leikskólinn Vesturborg er þriggja deilda leikskóli með 48 börn í vistun og um það bil 16 starfsmenn. Stefnt er að því að leikskólinn flyti í nýtt viðbótarhúsnæði á næsta skólaári og við það verða starfsaðstæður til fyrirmyndar, bæði fyrir börn og starfsfólk.
Í stefnu leikskólans er lögð áhersla á velferð barna, umhyggju, jákvæð samskipti og skapandi starf í öruggu og hlýlegu námsumhverfi. Einkunnarorð hans eru vinátta og virðing.
Þrjú þemu einkenna starfið: tónlist, sköpun og málörvun. Með þessum áherslum er markvisst unnið að því að efla samvinnu og nýta styrkleika alls starfsfólks.
Innan leikskólans starfar öflugt sérkennsluteymi. Starfsmannahópurinn er samheldinn og lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti og að vinna með styrkleika starfsmanna. Góður starfsandi ríkir og samvinna milli deilda er mikil.
Leikskólinn leggur áherslu á faglega þróun og að skapa umhverfi þar sem börn fá að njóta sín og þroskast á eigin forsendum.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Nánari upplýsingar
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari og kynningarbréf þar sem fram koma helstu ástæður þess að sótt er um starfið.
Á grundvelli samþykktar fyrir skóla- og frístundaráð ræður sviðsstjóri í starf leikskóla og um kjör fer samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.
Um er að ræða 100% stöðu sem er laus frá 1. ágúst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gyða Guðmundsdóttir, fagstjóri leikskóla í Vesturmiðstöð, á netfanginu gyda.gudmundsdottir@reykjavik.is eða í síma 6939854.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.