Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa við sérkennslu við leikskólann Brekkuborg sem er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi. Í skólanum er lögð áhersla á lýðræði, sjálfstæði barna og umhverfismennt. Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfinu. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð. Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar.
2025 fékk Brekkuborg hvatningarverðlaun frá Reykjavíkurborg fyrir Krummaverkefni.
Einkunnarorð skólans eru: Vinátta - Virðing - Lýðræði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Brekkuborg er með regnbogavottun.
Brekkuborg er með samskiptasáttmála sem, allir starfmenn fara eftir
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið er laust í ágúst.
Upplýsingar um starfið veitir Kristín Auður Harðardóttir í síma 411 3980 og í tölvupósti brekkuborg@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.