Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa næsta skólaár í leikskólanum Drafnarsteini á yngstu deild staðsett í Drafnarborg.
Drafnarsteinn er sex deilda leikskóli á tveimur starfsstöðum vestast í Vesturbæ Reykjavíkur sem eru Drafnarborg á Drafnarstíg 4 og Dvergasteinn sem er við Seljaveg 12. Í leikskólanum er unnið eftir hugmyndafræðinni Ótrúleg eru ævintýrin og því mikil áhersla á málörvun og læsi almennt. Drafnarsteinn er einnig Grænfánaskóli með regnbogavottun.
Drafnarborg er lítill ungbarnaleikskóli og fyrsta leikskólabyggingin í Reykjavík sem er byggð sem slík.
ATH að þetta er ekki sumarstarf en það er hægt að semja um að byrja 10.ágúst.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Mjög góð íslenska skilyrði
Fríðindi í starfi
· Menningarkort – bókasafnskort
· Samgöngustyrkur
· Sundkort
· 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
· Heilsuræktarstyrkur
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið veita Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Egill Helgason aðstoðarleikskólastjóri 411-3630

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.