Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er að bæta við sig deild og við þurfum á góðu fólki að halda til að koma til liðs við okkar frábæra hóp! Um fullt starf er að ræða.
Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum og styttingu vinnuvikunnar.
Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir til að taka þátt og þróa starfið og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026.
Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er sjálfstæð fag- og rekstrareining á vegum Seltjarnarnesbæjar og er staðsettur í Gamla Mýrarhúsaskóla við Nesveg. Í leikskólanum er ein deild og 16 nemendur á öðru aldursári til tveggja ára.
Í ungbarnaleikskólanum er lögð áhersla á máltöku og málrækt ungbarna, hreyfingu og útivist. Leikskólinn á í samstarfi við Bókasafn Seltjarnarnes og íþróttafélagið Gróttu.
Í leikskólanum er lögð áhersla á vellíðan samanber að þar er lítil líkamsrækt og slökunaraðstaða fyrir starfsfólk.
Upplýsingar um starfið veita:
Upplýsingar um störf í Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness veitir Selma Birna Úlfarsdóttir leikskólastjóri ungbarnaleikskóla, selma.b.ulfarsdottir@seltjarnarnes.is
