Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari/kennari

Seltjarnarnesbær  •  Onsite  •  17 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við þurfum á góðu fólki að halda til að koma til liðs við okkar frábæra hóp! Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga. Starfshlutfall er 100% og ráðið verður í stöðurnar frá 4. ágúst 2026.

Megin verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna og fylgist vel með velferð þeirra
  • Hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf þarf að fylgja umsókn)
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.

Leikskóli Seltjarnarness er sameinuð fag- og rekstrareining með um 210 börnum. Í skólanum eru 12 deildir á þremur starfsstöðvum, Mánabrekku og Sólbrekku við Suðurströnd og Stjörnubrekku á Skólabraut 1. Í skólanum er lögð áhersla á að börn fái tækifæri til að hjálpa sér sjálf eftir því sem þroski þeirra og geta leyfir og þau styrkt til sjálfshjálpar í öllum þáttum daglegs lífs. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins því samkvæmt hugmyndafræði leikskóla lærir barn mest og best í leik og samskiptum við börn og fullorðna í frjóu og skapandi umhverfi. Í leikskólanum er lögð sérstök áhersla á tónlist.

Upplýsingar um starfið veita:

Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Setjarnarness, margret.gisladottir@seltjarnarnes.is

Elín Margrét Rafnsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, elin.m.rafnsdottir@seltjarnarnes.is

Linda Björg Birgisdóttir aðstoðarleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, linda.b.birgisdottir@seltjarnarnes.is

Seltjarnarnesbær

About Seltjarnarnesbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown