Leikskólakennari með leyfisbréf til kennslu óskast til starfa í leikskólanum Rofaborg í Árbæ. Rofaborg er rótgróinn, fimm deilda leikskóli í hjarta Árbæjar. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni, vaxa í starfi og aðstoða litla fólkið sem hér dvelur við að þroskast og dafna. Rofaborg er líflegur starfsstaður þar sem lögð er áhersla á að nýta styrkleika hvers og eins svo að allir hafi tækifæri til að hafa áhrif á starfið. Leikur, hreyfing og sköpun eru ríkur þáttur í starfi leikskólans sem og félagsfærniþjálfun, málörvun og læsi.
Einkunnarorð Rofaborgar eru leikur - gleði - vinátta.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Kristinsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3841 eða á gudlaug.kristinsdottir@reykjavik.is
Myndband úr starfi Rofaborgar - https://vimeo.com/315468193
Instagram - @rofaborg_leikskoli

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.