Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Lyngheima sem er fjögurra deilda leikskóli við Mururima 2 í Grafarvogi. Áhersla er lögð á skapandi starf og gleði. Leikskólinn er með Grænfánann og er heilsueflandi skóli - vellíðan fyrir alla.
Uppeldisstefna skólans er byggt á hugmyndafræði kenndri við borgina Reggio Emilia á norður Ítalíu. Hugmyndafræðingurinn á bak við stefnuna var Dr. Loris Malagozzi. Einnig er unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum, „Draumar geta ræst."
Leiðarljós Lyngheima eru: Virðing, Umhyggja, Tillitsemi.
Starfið er laust. Um 100% starf er að ræða.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Lyngheimar hefur þrisvar sinnum fengið viðurkenningu sem Fyrirmyndaskóli, einnig urðum við í fyrsta sæti sem Stofnun ársins 2024 í okkar flokki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun, leyfisbréf kennara.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starf.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð..
Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli - Stig B2 skv. samevrópsaka tungumálarammanum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
Menningarkort – bókasafnskort
Samgöngustyrkur
Sundkort
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Heilsuræktarstyrkur
Hádegismatur
Forgangur í leikskóla / afsláttur af dvalargjaldi. Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.
Starfshlutfall
100%
Nafn sviðs: Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir.
Kristín Helgadóttir
kristin.helgadottir@Reykjavik.is
Sími: 6647716/4113991
Nánari upplýsingar um leikskólann eru á heimasíðu Lyngheima.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.