The City of Reykjavik

Leikskólakennari Jöklaborg

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í Jöklaborg eru 6 deildir fyrir 1.-6 ára gömul börn. Leiðarljós okkar eru GLEÐI, VIRÐING OG SKÖPUN. Við leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi.

Það eru spennandi tímar hjá okkur. Endurskipulagning starfsins stendur yfir þar sem starf í anda Reggio Emilia skal vera í hávegum haft með Aðalnámskrá leikskóla, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og lög um leikskóla að leiðarljósi. Að auki erum við á góðri vegferð í að verða réttindaskóli Unicef. Réttindaskóli á leikskólastigi - Handbók UNICEF fyrir leikskóla - menntastefna.is

Þá verður áhersla jafnframt á læsi og að efla íslenskan orðaforða.

Lubbi ( Forsíða (lubbi.is) )og Blær (Um Vináttu | Barnaheill ) eru okkur góðum kunn og munum við vinna áfram með þau verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þar með talið að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, og eða önnur uppeldismenntun æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta algjört skilyrði. Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Frítt í sundlaugar borgarinnar.
  • Frítt fæði á matartímum leikskólans
  • Menningarkort þar sem innifalið í kortinu eru 14 söfn, fjöldi sýninga og viðburða, bókasafnsskírteini auk fjölda tilboða.
  • Heilsuræktarstyrkur eftir 6 mánuði í starfi sem er nú komin í 28.000kr. árlega.
  • Samgöngustyrkur með greiðslu mánaðarlega þar sem fólk er hvatt til að notast við umhverfisvænar ferðir til og frá vinnu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Upplýsingar um starfið gefur Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri í síma 411 3250, 696 5096 eða í tölvupósti joklaborg@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media