Leikskólinn Hamrar í Grafavogi auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.
Einkunnarorð leikskólans eru Jákvæðni, Virðing og Samvinna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, starfið er laust.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Ef ekki fæst einstaklingur með kennaramenntun verður litið til annarrar uppeldis- eða sálfræðimenntunar.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Guðmunda Júlía Valdimarsdóttirleikskólastjóri í Hömrum í síma 411-3961 eða í gegnum netfangið gudmunda.julia.valdimarsdottir@reykjavik.is eða hamrar@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.