The City of Reykjavik

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra Norðlingaskóla

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  18 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leitað er að leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á skólastarfi og velferð barna, býr yfir sterkri faglegri sýn og hefur getu til að efla samstarf, þróun og árangur í öflugu teymi starfsfólks.

Aðstoðarskólastjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun, þróun og daglegri stjórnun skólans.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf og þar starfa um 90 starfsmenn.

Áhersla Norðlingaskóla er m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks. Norðlingaskóli stendur í hjarta hverfisins og er mikilvægur hluti af samfélaginu.

Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að leiða daglega stjórnun skólans í samstarfi við skólastjóra og gegna hlutverki staðgengils hans.
  • Að móta og framfylgja sýn og stefnu skólans í samstarfi við starfsfólk og nemendur.
  • Að leiða skipulag og þróun helstu þátta skólastarfs í samstarfi við stjórnunarteymi skólans.
  • Að efla öflugt samstarfi innan skólasamfélagsins og stuðla að farsælum samskiptum.
  • Að standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Að vera faglegur leiðtogi á sviði kennslu, skólaþróunar og nýbreytni.
  • Að efla jákvæða starfsmenningu, faglegt lærdómssamfélag og teymisvinnu meðal starfsfólks.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Menntun á sviði grunnskólakennslu er æskileg.
  • Framhaldsnám og reynsla af stjórnun og/eða þróunarstarfi í grunnskóla æskileg.
  • Þekking og reynsla í kennslu á grunnskólastigi.
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar.
  • Reynsla og áhugi á að starfa í hvetjandi og árangursríku skólasamfélagi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði, skipulagshæfileikar og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar

Umsókn skal einnig fylgja kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda til starfsins, upplýsingum um farsæl verkefni sem hann hefur leitt í skólastarfi, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og öðrum gögnum sem málið varðar.

Norðlingaskóli er öflugur og framsækinn skóli þar sem rík áhersla er lögð á samstarf, þróun og vellíðan nemenda og starfsfólks. Við hvetjum metnaðarfulla og framsýna einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í öflugu skólastarfi til að sækja um starfið.

Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri adalbjorg.ingadottir@reykjavik.is

og Bára Birgisdóttir, fagstjóri grunnskóla í Austurmiðstöð bara.birgisdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media