Job Description
Velferðarsvið Garðabæjar leitar að sumarstarfsfólki á heimili fatlaðs fólks. Ráðið verður í 70-80% starfshlutfall. Starfið er vaktavinna þar sem unnið er að jafnaði aðra hverja helgi, ásamt morgun-, dag-, kvöld- og næturvöktum.
Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita persónulega aðstoð og stuðning
- Veita félagslegan stuðning og hvatningu
- Veita aðstoð við almenn heimilisstörf
- Önnur störf sem starfsmanni eru falin af yfirmanni
Menntun, reynsla og hæfni:
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur svo sem félagsliða eða stuðningsfulltrúanám. Góð almenn menntun
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Frumkvæði, sjálfstæði og lipurð í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Bílpróf skilyrði
- Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ára
Hlunnindi:
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Umsóknarfestur er til og með 26. júní 2026
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Friðriksdóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma 6171581 á skrifstofutíma eða með því að senda tölvupóst á ingibjorgf@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.