Kjörbúðin Skagaströnd leitar eftir duglegum og samviskusömum starfsmanni í hlutastarf.
Kjörbúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.
Helstu verkefni:
- Áfyllingar á vörum
- Afgreiðsla
- Þjónusta við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
- Þjónustulund
- Skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og áræðni
Annað:
- Heilsustyrkur til starfsmanna í boði
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.
- Velferðarþjónusta Samkaupa
- Tækifæri til menntunar
Samkaup hf. hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup hf. rekur yfir 60 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Samkaup hf reka 64 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Verslanir Samkaupa spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til hverfisverslana í íbúðahverfum. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Staða Samkaupa er sterk utan höfuðborgarsvæðisins en félagið rekur einnig verslanir í Reykjavík og nágrenni.