Samkaup hf.

Kjörbúðin Akureyri - hlutastarf

Samkaup hf.  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Kjörbúðin á Akureyri leitar að öflugum og samviskusömum einstaklingi til afleysingar á virkum dögum í október og til starfa í helgarvinnu aðra hverja helgi frá og með 1. nóvember, með möguleika á aukavöktum.

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.

Kjörbúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Helstu verkefni:

  • Almenn verslunarstörf
  • Vöruframsetning og áfylling
  • Afgreiða og þjónusta viðskiptavini
  • Þrif og frágangur

Hæfniskröfur:

  • Geta til að vinna sjálfstætt og bera ábyrgð á eigin verkefnum
  • Drifkraftur og jákvætt viðmót
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Annað:

  • Heilsustyrkur
  • Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa.
  • Velferðarþjónusta Samkaupa

Frekari upplýsingar veitir Ingibjörg S Sigurðardóttir verslunarstjóri ingibjorg.sigurdardottir@kjorbudin.is

Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.

Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.

Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Samkaup hf.

About Samkaup hf.

Samkaup hf reka 64 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Verslanir Samkaupa spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til hverfisverslana í íbúðahverfum. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Staða Samkaupa er sterk utan höfuðborgarsvæðisins en félagið rekur einnig verslanir í Reykjavík og nágrenni.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Keflavík, IS
Year Founded
Unknown
Social Media