Garðabær

Kirkjuból - leikskólakennari

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  3 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Okkur er annt um rödd barnanna og vinnum markvisst með eftirfarandi þætti í daglegu starfi.

  • John Dewey
  • Barnasáttmálinni sameinuðu þjóðanna
  • Lýðræðislegt leikskólastarf
  • Sjálfstæði og valdefling
  • Vellíðan og gleði

Skólanámskrá leikskólans var uppfærð og gefin út á heimasíðu leikskólans í tengslum við 40 ára afmæli leikskólans 1. nóvember 2025.

Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.

Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í stöðugri mótun.

Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.

Helstu verkefni

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Taka þátt í uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni

Menntun, hæfni og reynsla

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Reynsla að vinna með börnum sem þurfa stuðning í hóp
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi í starfi

  • Full stytting og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna búsetta í Garðabæ
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk

Um er að ræða 100 % stöðu sem er laus sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Berglind Ósk Þráinsdóttir starfandi leikskólastjóri og Hildur Rut Stefánsdóttir starfandi aðstoðarleikskólastjóri/sérkennslustjóri í síma 591 9360.

Einnig hægt að senda tölvupóst á netföngin: berglindthr@kirkjubolid.is eða kirkjubol@kirkjubolid.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown