Veitur leita að drífandi og lausnamiðuðum þjónusturáðgjafa til að ganga til liðs við þjónustusvið fyrirtækisins. Um er að ræða tímabundið starf þar sem þú tekur þátt í að veita viðskiptavinum góða og skilvirka þjónustu í gegnum síma, tölvupóst og netspjall.
Í starfinu munt þú sinna fjölbreyttum erindum viðskiptavina, greina þarfir þeirra og leysa úr málum með fagmennsku og hlýju. Þú verður hluti af teymi sem hefur bein áhrif á upplifun og ánægju viðskiptavina og vinnur markvisst að því að bæta þjónustu og einfalda samskipti.
Hlutverkið
Í starfinu felst meðal annars að:
Við leitum að einstaklingi sem er með:
Reynsla af þjónustustörfum er kostur. Þekking eða reynsla úr veitugeiranum, til dæmis á sviði rafmagns, hita, vatns eða fráveitu, getur einnig nýst vel í starfi.
Vinnutími er frá klukkan 8:30 til 16:30. Um er að ræða tímabundið starf
Hvers vegna Veitur?
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026. Nánari upplýsingar veitir Halldóra Hinriksdóttir forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, halldora.gudrun.hinriksdottir@veitur.is

Veitur Utilities is the biggest utility company in Iceland; we provide important services for the public benefit and ensure that users have continued access to hot water supplies, electricity, water and wastewater systems.
More info here:
In Icelandic: https://www.veitur.is/storfin
In English: https://www.veitur.is/en/storfin
Copy and paste this link to apply for a job: https://starf.or.is/veitur/