Mögnum

ÞJÓNUSTUFULLTRÚI – KJARAMÁL

Mögnum  •  Onsite  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Verkalýðsfélag Suðurlands óskar eftir að ráða metnaðarfullan aðila í fjölbreytt starf við að tryggja faglega, skilvirka og góða þjónustu við félagsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og þjónusta við félagsfólk (sími, tölvupóstur og viðtöl)
  • Umsjón með kjaramálum félagsmanna og eftirfylgni mála
  • Vinnustaðaeftirlit og heimsóknir á vinnustaði
  • Fræðsla og kynningar í skólum og á vinnustöðum
  • Viðvera á skrifstofu í Vík samkvæmt skipulagi
  • Afgreiðsla og meðferð umsókna úr sjúkrasjóði og/eða menntasjóði
  • Ýmis önnur verkefni og skrifstofustörf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á vinnumarkaði
  • Læsi á lög, reglugerðir og kjarasamninga
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Hæfni til að eiga skýr og fagleg samskipti við fjölbreyttan hóp félagsmanna
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta og tæknilæsi
  • Góð íslensku og ensku kunnátta er skilyrði, önnur tungumál eru kostur s.s. pólska eða spænska
  • Búseta á svæðinu er kostur

Félagssvæði Verkalýðsfélag Suðurlands nær frá Þjórsá í vestri að Lómagnúp í austri og nær til alls verkafólks á almennum vinnumarkaði, hjá sveitarfélögum og hjá ríkinu þar sem það þjónustar fjölbreyttan hóp félagsmanna á Suðurlandi. Starfsemin einkennist af fjölbreyttum verkefnum, miklum samskiptum og við leggjum áherslu á að verja réttindi félagsfólks.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita: Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media