Fagkaup

Þjónustufulltrúi í þjónustudeild útibús Fagkaupa, Akureyri

Fagkaup  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Þjónustudeild útbús Fagkaupa á Akureyri óskar eftir að ráða öflugan þjónustufulltrúa til starfa.

Þjónustufulltrúi útbúsins sinnir fjölbreyttu starfi í vöruhúsi, í góðu starfsumhverfi í stækkandi fyrirtæki.

Verkefnin kalla á dugnað og þjónustulundað starfsfólk sem leggur sig fram í daglegum störfum.

Helstu verkefni

  • Vörutínsla
  • Vörumóttaka
  • Áfyllingar
  • Útkeyrsla
  • Tiltekt og önnur tilfallandi störf í vöruhúsi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi í vöruhúsi er kostur
  • Meiraprófsréttindi er kostur
  • Vinnuvélaréttindi er kostur
  • Rík þjónustulund
  • Stundvísi, frumkvæði og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta
  • Snyrtimennska
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Hjá Fagkaupum starfa um 350 starfsmenn á ólíkum starfsstöðvum og í ólíkum störfum fyrirtækisins.

Nánari upplýsingar má lesa á www.fagkaup.is

Við hvetjum áhugasama að sækja um starfið óháð aldri, kyni og uppruna. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Unnið er úr umsóknum um leið og þær berast og farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknarfrestur er til 22.júní 2026

Fagkaup

About Fagkaup

Fagkaup er leiðandi fyrirtæki í sölu, þjónustu og viðskiptaþróun á iðnaðar-, veitu- og byggingarvörumarkaðnum á Íslandi.

Fagkaup styður við uppbyggingu innviða í íslensku atvinnu- og efnahagslífi með virðisaukandi vörum og framúrskarandi þjónustu.

Fagkaup samanstendur af nokkrum mismunandi rekstareiningum, hvert með sína eigin sögu en byggir á sterkum grunni Johan Rönning, sem auk þess að vera leiðandi í sölu og þjónustu á raflaganaefni og rafbúnaði til fagmanna, hefur allt frá árinu 2007 við sameiningu systurfélaga sinna rekið öfluga stoðþjónustu við þær einingar ásamt öðrum rekstrareiningum sem bæst hafa við eftir því sem árin liðu. Rekstrareiningarnar eru 11 talsins; Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, Áltak, S. Guðjónsson, Ísleifur, Varma og vélaverk, KH Vinnuföt, Fossberg, Hagblikk og Þétt.

Industry
Wholesale & Distribution
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1933
Social Media