Sýn

Þjónustuborð hjá kerfisrekstri

Sýn  •  Onsite  •  16 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Elskar þú að grúska, leysa vandamál og koma að uppfærslum og þróun nýrra lausna? Við hjá Sýn óskum eftir að ráða metnaðarfullan, áhugasaman og lausnamiðaðan sérfræðing í DevOps teymi. Teymið sér um innviðaþróun, samþættingar, rekstur og viðhald á stórum hluta upplýsingakerfa Sýnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með þjónustuborði og afgreiðsla mála
  • Eftirlit með þjónustum
  • Nýsköpun, þróun og viðhald á sjálfvirkum verkferlum
  • Aðkoma að þróun innviðalausna, verkferla og gervigreindarlausna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisreksturs, tölvunarfræði eða verkfræði
  • Reynsla af hugbúnaðarþróun og/eða kerfisrekstri
  • Reynsla af ferlagreiningum er mikill kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, þjónustulund
  • Forvitið og jákvætt viðhorf og brennandi ástríða fyrir því að skapa lausnir sem gera enn betur fyrir viðskiptavini okkar.
Sýn

About Sýn

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Industry
Telecommunications
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Website
syn.is
Social Media