Við hjá Nova leitum að öflugum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á fólki, sölu og því að fara fram úr væntingum í þjónustu!
Við erum á spennandi vegferð með verslanir Nova. Við byggjum á sterkum grunni, en erum alltaf hungruð í að gera enn betur. Við viljum skora á okkur sjálf, lyfta upplifun viðskiptavina enn hærra og setja árangur verslana í næsta gír.
Til þess þurfum við manneskju sem sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir, manneskju sem er óhrædd við að skora á, hefur gaman af því að vinna með fólki og veit að besti árangurinn næst þegar fólkið í liðinu fær að njóta sín.
Hvað felst í starfinu?
Þú verður lykilmanneskja í að leiða og þróa verslanir Nova, styðja verslunarstjóra og byggja upp sterkan sölu- og þjónustukúltúr.
Dagarnir verða fjölbreyttir og verkefnin meðal annars að:
Hver myndi blómstra í þessu hlutverki?
Við sjáum fyrir okkur manneskju sem hefur gaman af því að ná árangri í gegnum annað fólk.
Þú þarft ekki að kunna allt, en við viljum gjarnan að þú:
Reynsla úr verslunarrekstri er kostur en alls ekki eina leiðin inn í starfið. Menntun sem nýtist í starfi er líka kostur, en við horfum fyrst og fremst til reynslu, hæfni og þess sem þú getur komið með í liðið.
Hvað bíður þín hjá Nova?
Hjá Nova færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, vinna með metnaðarfullu og skemmtilegu fólki og taka þátt í að móta framtíð verslana okkar.
Við trúum á skýra framtíðarsýn og góða samstillingu, frelsi til að láta verkin tala, sterka liðsheild og vinnustað þar sem metnaður, gleði og gaman ræður ríkjum.
Og eitt að lokum...
Ekki hika við að sækja um þótt þú getir ekki hakað við hvert einasta atriði. Ef þú hefur neistann, leiðtogahæfileikana og löngun til að gera góða hluti með góðu fólki, þá viljum við endilega heyra frá þér.
Komdu og taktu verslanir Nova í næsta gír með okkur! 🪩

Nova var stofnað í maí 2006 og í lok mars 2007 fékk Nova úthlutað 3G rekstrarleyfi. Þann 1. desember 2007 opnuðum við svo dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi. Nova á og rekur eigið 4G/4.5G farsíma- og netkerfi á landsvísu. Í febrúar 2019 hóf Nova prófanir á fyrsta 5G sendinum á Íslandi og 5.5.2020 fór Nova í loftið með 5G farsíma- og netþjónustu, fyrst allra farsímafyrirtækja á Íslandi. Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi.
Við erum sérstaklega stolt og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 hjá ÍMARK og eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 17. árið í röð! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustað í heimi!
Nova is a life-style oriented brand built around the first independent 3G mobile operator in Iceland. Nova has enjoyed an unparalleled success in the Icelandic telco market by capturing 34,5% of the mobile market share and in doing so established itself as a leading brand and the market challenger. The key to this success is the quality of the customer service Nova offers. Nova has been awarded the highest customers satisfaction score sixteen years in a row. Nova was the first telecommunication company to test the first 5G transmitter in Iceland and on 5 May 2020, Nova went live with 5G mobile phone and internet services, the first of all mobile phone companies in Iceland. Nova has 150 talented employees with various backgrounds and experiences. In 2016 Nova added fiber service to its selection of products, using a fiber system provided by Ljósleiðarinn ehf. We are especially proud, humble and grateful to have the opportunity to service you as a customer and our opportunities to grow and learn every day.