Advania Ísland

Hugbúnaðarsérfræðingur á sviði rekstrarlausna

Advania Ísland  •  Onsite  •  3 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við hjá Advania leitum að öflugum og sjálfstæðum einstaklingi til að þróa og reka lausnir sem tengja saman kerfi, ferla og sjálfvirkni. Hlutverkið hentar einstaklingi sem er sterkur í Go, samþættingum, Kubernetes og rekstrarhugsun, vill vinna nálægt raunverulegum rekstraráskorunum og sjá afrakstur vinnunnar nýtast beint í þjónustu við viðskiptavini og innri teymi.

Þú vinnur í litlu og öflugu teymi þar sem áhersla er á sjálfstæði, tæknileg gæði, einfaldar lausnir og skýra ábyrgð — og þar sem hlutverkið snýst ekki eingöngu um að skrifa kóða, heldur að skilja vandamálið, hanna rétta lausn og byggja kerfi sem þola raunverulegt álag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróa og viðhalda bakendaþjónustum í Go
  • Hanna og útfæra samþættingar við ytri kerfi, til dæmis rekstrar, samskipta og þróunartól
  • Byggja lausnir sem styðja við sjálfvirkni, verkflæði og örugga keyrslu á aðgerðum
  • Vinna með PostgreSQL, gagnalíkön, fyrirspurnir og rekstrargögn
  • Þróa og afhenda þjónustur í Docker og Kubernetes umhverfi
  • Vinna náið með tækni, rekstrar, notendaþjónustu og sjálfvirkniteymum við að koma lausnum í notkun

Hæfniskröfur

  • Góð þekking í bakendaþróun, helst í Go
  • Góð reynsla af REST API
  • Góð reynsla af Docker og Kubernetes í daglegri þróun eða rekstri
  • Góð hæfni til að greina og leysa vandamál í dreifðum kerfum
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að koma hlutum í framkvæmd
  • Góð samskiptahæfni á íslensku og ensku

Kostir en ekki skilyrði

  • Reynsla af TypeScript og React
  • Reynsla af nútíma frontend tólum, til dæmis Vite og strict TypeScript
  • SQL þekking og reynsla af PostgreSQL

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 8. júní 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Skúli Axelsson, deildarstjóri User&endpoint, skuli.axelsson@advania.is / 4409000

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media