Íslandsbanki

Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanki  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Markaðs- og verðbréfalausnir Íslandsbanka leita að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt starf við rekstur og þróun hugbúnaðar í öflugu og skapandi starfsumhverfi. Við myndum góða liðsheild sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir og vinnur náið með viðskiptaeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, jafnt innan sem utan bankans.

Við leggjum áherslu á notendamiðaða þróun, gott samstarf og að skila lausnum sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Deildin ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og áframhaldandi þróun hugbúnaðarlausna fyrir verðbréfa- og markaðsviðskipti Íslandsbanka.

Starfið felur því bæði í sér að tryggja stöðugan og traustan rekstur núverandi lausna og taka þátt í áframhaldandi þróun þeirra. Samhliða rekstrinum eiga sér stað miklar breytingar á þessu sviði, meðal annars með aukinni sjálfvirknivæðingu, endurnýjun lausna og bættu stafrænu aðgengi.

Íslandsbanki er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Tækniumhverfi okkar er nútímalegt og við leggjum ríka áherslu á gæði og áreiðanleika lausna, sjálfvirknivæðingu og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni:

  • Samþætting og rekstur aðkeyptra lausna
  • Villugreining, úrbætur og bestun viðskiptaferla
  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir stafræna þjónustu ásamt nauðsynlegri innviða uppbyggingu
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs
  • Önnur verkefni vöruteyma

Hæfniskröfur:

  • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur
  • Hugarfar til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Þórsdóttir forstöðumaður hjá Stafrænni þróunn og gagnastýringu, (thordis.thorsdottir@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Við hvetjum umsækjendur til að sækja um sem fyrst - við áskiljum okkur rétt til þess að byrja að vinna úr umsóknum áður en umsóknarfrestur rennur út.

Íslandsbanki

About Íslandsbanki

With a history that dates from 1875, Íslandsbanki is an Icelandic universal bank with a strong customer focus. The Bank believes in moving Iceland forward by empowering its customers to succeed - reflecting a commitment to run a solid business that is a force for good in society. Driven by the corporate vision to create value for the future with excellent service, Íslandsbanki’s banking model is led by three business divisions that build and manage relationships with its customers. Íslandsbanki maintains a strong market share with the most efficient branch network in the country, supporting at the same time its customers’ move to more digital services.

Um Íslandsbanka:

Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýn um að skapa virði til framtíðar með því að veita framúrskarandi þjónustu, vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra.

Industry
Finance & Insurance
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
1904
Social Media