Garðabær

Hofsstaðaskóli - stuðningsfulltrúi

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúum í 75 – 100% starf skólaárið 2026-2027. Vinnutími er frá kl. 8:00-14:30/16:00. Stuðningsfulltrúar vinna með nemendum í nánu samstarfi við kennara, þroskaþjálfa og annað fagfólk á skólatíma og í frístundaheimili skólans.

Í Hofsstaðaskóla verða um 460 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu

Reynsla og hæfni:

  • Reynsla af starfi með börnum
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur

Hlunnindi:

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Umsóknarfrestur er til 10. júní 2026 Ráðið er í starfið frá 14. ágúst eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Steinunn Friðriksdóttir deildarstjóri stoðþjónustu og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown