
Frístundaheimilið Regnboginn í Hofsstaðaskóla þjónar um 200 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi. Í boði er hlutastarf eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Opnunartími er frá kl. 13:30 -16:30. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.
Í Hofsstaðaskóla eru 460 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Reynsla og hæfni:
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. Ráðið er í starfið frá 13. ágúst eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Kristín María Reynisdóttir umjónarmaður frístundaheimili kristinre@hofsstadaskoli.is Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
