Breiðholtsskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og þar sækja nám um 360 nemendur og við hann starfa 80 starfsmenn. Skólinn stendur við Arnarbakka 1 - 3. Við skólann er góð útisundlaug, stórt íþróttahús og fallegur hátíðarsalur.
Við skólann er lögð áhersla á árangur fyrir alla nemendur og einkunnarorðin ábyrgð, traust og tillitssemi eru leiðarljós í daglegu starfi skólans. Við sem hér störfum erum stolt af skólanum okkar sem státar af fjölmenningarlegu samfélagi nemenda, foreldra og starfsmanna.
Í Breiðholtsskóla er lögð áhersla á skapandi og skemmtilegt skólastarf, læsi, félagsfærni og sjálfseflingu.
Lögð er áhersla á samvinnu starfsmanna þar sem allir taka virkan þátt í þróun skólastarfsins í anda Aðalnámskrár og Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
· Annast kennslu nemenda í smíði, hönnun og nýsköpun í samstarfi við kennara
· Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
· Að vinna í teymi með öðru starfsfólki.
· Leyfisbréf kennara.
· Menntun og hæfni til kennslu nýsköpunar, hönnunar og smíði.
· Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
· Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
· Faglegur metnaður.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Afburðar góð tölvu- og tæknikunnátta fyrir vinnu í snilliveri.
· Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
· Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
· Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
· Menningarkort og bókasafnskort.
· Samgöngustyrkur.
· Sundkort.
· Heilsuræktarstyrkur.
Laun samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Starfshlutfall 60%.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri í síma 4117450 og í tölvupósti asta.bjarney.eliasdottir@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.