VEST leitar að hönnunar- og söluráðgjafa til liðs við metnaðarfullt teymi fyrirtækisins. Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu á vönduðum húsgögnum og lýsingu frá fremstu hönnunarhúsum Evrópu. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á hönnun, nýtur þess að veita framúrskarandi þjónustu og vill taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum í daglegum rekstri.
VEST er hönnunarsýningarsalur sem sérhæfir sig í vönduðum, tímalausum húsgögnum og lýsingu frá nokkrum af fremstu hönnunarhúsum Evrópu. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á persónulega ráðgjöf, fagmennsku og framúrskarandi þjónustu í skapandi umhverfi.
Hlynur Atli Magnússon – hlynur@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.