Laus er til umsóknar 100% staða uppeldisfulltrúa í Hlíðarskóla Um er að ræða tímabundna afleysingu til og með 31. júlí 2027 með möguleika á ótímabundinni ráðningu.
Vinnutími er frá kl. 7:30-15 aðra hverja viku og síðan frá kl. 8-16 vikuna á móti alla virka daga nema á föstudögum en þá lýkur skólastarfi kl. 13.
Ráðið er í stöðuna frá 10. ágúst 2026.
Hlíðarskóli er lítill sérskóli fyrir nemendur með hegðunar- og aðlögunarvanda, félags- og tilfinningarvanda og fjölskyldur þeirra. Staðsetning skólans er einstök en hann er staðsettur í Skjaldarvík, 5 km norðan Akureyrar og hefur markað sér umhverfisstefnu með áherslu á umhverfismennt og útinám þar sem nánasta umhverfi skólans er nýtt eins og kostur er. Kennarar fá frelsi og stuðning til að fara ótroðnar slóðir og hugsa út fyrir kassann þegar kemur að uppsetningu náms og kennsluaðferðum. Í Hlíðarskóla er mikil áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og foreldra og vellíðan og framfarir nemenda.
Hér er einstakt tækifæri til að starfa í fámennum skóla þar sem kennt er í litlum hópum til að mæta hverjum og einum nemanda þar sem hann er staddur námslega.
Leiðarljós: Jákvæð afstaða til manneskjunnar og tiltrú á getu hennar til breytinga og þróunar þar sem leitast skal við að byggja á styrk hvers og eins.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hlidarskoli.is
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að taka fullan þátt í ögrandi og fjölbreyttu starfi með kraftmiklum nemendum og samstarfsfólki.
Helstu verkefni eru:
Hæfniskröfur:
Starfsfólk skólans gegnir starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdimar Valsson skóalstjóri í síma 414-7989 eða á netfanginu valdimar@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2026.
