Akureyrarbær

Hlíðarskóli: Þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, sérkennari, sálfræðingur, atferlisfræðingur eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  25 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hlíðarskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, sérkennara, atferlisfræðing, sálfræðing eða aðila með aðra sambærilega háskólamenntun sem nýtist í starfi og eykur við þekkingu starfsfólks Hlíðarskóla. Um er að ræða 100% ótímabundið starf, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Hlíðarskóli er lítill sérskóli fyrir nemendur með hegðunar- og aðlögunarvanda, félags- og tilfinningarvanda og fjölskyldur þeirra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu starfsfólks og foreldra og vellíðan og framfarir nemenda.

Hlíðarskóli er partur af farteymi Akureyrarbæjar sem er nýtt úrræði og mun viðkomandi starfa innan teymisins ásamt öðru starfsfólki Hlíðarskóla. Hlutverk farteymis er að veita tímabundinn, markvissan og þverfaglegan stuðning inn í leik- og grunnskóla þegar mál eru þung, viðvarandi og fjölþætt og hefðbundin úrræði hafa verið fullnýtt. Farteymið starfar að mestu inni í skólaumhverfinu, vinnur með börnum, handleiðir starfsfólk og styður við innleiðingu inngripa sem bæta námsumhverfi, öryggi, líðan og virkni.

Hér er einstakt tækifæri til að starfa í fámennum skóla þar sem unnið er í litlum hópum til að mæta hverjum og einum nemanda þar sem hann er staddur námslega. Skólinn er staðsettur í Skjaldarvík 5 km norðan við Akureyri. Staðsetning skólans er einstök og mikil nálægð við náttúruna og er starfsfólk hvatt til að nýta umhverfið þegar kemur að því að brjóta upp daginn og fara fjölbreyttar leiðir í starfi. Starfsfólk fær frelsi og stuðning til að fara ótroðnar slóðir og hugsa út fyrir kassann þegar kemur að uppsetningu náms, þjálfunar- og afþreyingu.

Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með góða samskiptafærni, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skóla.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hlidarskoli.is

Helstu verkefni:

  • Sinnir þjálfun, meðferð og kennslu eftir því sem við á skv. menntun.
  • Hefur umsjón með skipulagi vegna nemenda.
  • Útbýr þjálfunar, kennslu- eða meðferðartengt efni sem hann vinnur með nemendum.
  • Metur framfarir nemenda í samvinnu við aðra fagaðila.
  • Vinnur kerfisbundið að þvi að efla hæfni og færni nemenda.
  • Er í samvinnu með samstarfsfólki, foreldrum, tengslastofnunum og öðrum sem við á.
  • Starfar í farteymi Akureyrarbæjar.
  • Tekur þátt í þróunarstarfi innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf og starfsréttindi sem iðjuþjálfi, þroskaþjálfi, sérkennari, atferlisfræðingur, sálfræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist i starfi.
  • Þekking og/eða reynsla af notkun CAT kassa, ART (Aggression Replacement Training) og/eða TEACCH er kostur.
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum með margvíslegar þarfir skilyrði.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Lausnamiðuð hugsun.
  • Skipulagsfærni, sveigjanleiki og víðsýni í starfi.
  • Góða færni í samskiptum og samvinnu.
  • Jákvætt viðmót.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Færni í miðlun og framsetningu upplýsinga.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti skilyrði.
  • Frumkvæði til að leita sér nýrrar þekkingar, m.a. hjá öðru fagfólki.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, reynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna umræddu starfi í Hlíðarskóla.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdimar Heiðar Valsson skólastjóri í síma 414-7989 og á netfanginu valdimar@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2025

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown