Akureyrarbær óskar eftir að ráða til sín vélamenn til vinnu á snjótroðurum á skíðasvæði í Hlíðarfjalli veturinn 2026-2027. Um er að ræða tímabundið starf frá opnun skíðasvæðisins, sem er venjulega um miðjan desember, til vertíðarloka sem er yfirleitt í enda apríl.
Vinnutími er að langmestu leyti utan hefðbundins opnunartíma skíðasvæðisins.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður með tölvupósti á brynjar.helgi@hlidarfjall.is og í síma 690-5209.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2026.
