Akureyrarbær

Hlíðarfjall: Umsjón með miðasölu

Akureyrarbær  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli óskar eftir að ráða umsjónarmann með miðasölu fyrir veturinn 2026-2027. Um er að ræða tímabundið starf frá opnun skíðasvæðisins, sem er venjulega um miðjan desember, til vertíðarloka sem er yfirleitt í enda apríl.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón með miðasölu og upplýsingaborði.
  • Þjálfun og verkstjórn undirmanna í miðasölu.
  • Starfsmaður sinnir hefðbundinni miðasölu ásamt sölu og pöntunum á ýmsum smávörum.
  • Starfsmaður sinnir símsvörun, upplýsingagjöf til viðskiptavina og samstarfsmanna, uppfærslu á samfélagsmiðlum ásamt annarri bakvinnslu.
  • Starfsmaður sér um uppgjör í lok dags á sölukössum.
  • Umsjón með þrif í skíðaskálanum.

Hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að hafa góða þjónustulund, geta unnið sjálfstætt og undir álagi.
  • Reynsla af verkstjórn æskileg.
  • Reynsla af uppgjöri æskileg.
  • Viðkomandi þarf að búa yfir góðri almennri tölvuþekkingu.
  • Reynsla af vinnu við samfélagsmiðla.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður með tölvupósti brynjar.helgi@hlidarfjall.is og í síma 690-5209.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown