Akureyrarbær

Hlíðarfjall: Skíðasvæðaöryggisfulltrúi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Akureyrarbær óskar eftir að ráða skíðasvæðaöryggisfulltrúa til starfa á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fyrir veturinn 2026-2027. Um er að ræða 80-100% tímabundið starf frá opnun skíðasvæðisins, sem er venjulega um miðjan desember, til vertíðarloka sem er yfirleitt í enda apríl.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón með skíðagæslu í Hlíðarfjalli.
  • Tryggir öryggi gesta og starfsfólks á svæðinu.
  • Eftirlit og merkingar á skíðabrekkum.
  • Framkvæmd snjóflóðamats og eftirlits með snjóflóðahættu.
  • Sjúkragæsla og veiting fyrstu hjálpar ásamt sjúkraflutningum með sérhæfðum búnaði á skíðasvæðinu og skýrslugerð vegna slysa.
  • Aðstoðar við mildunaraðgerðir v/snjóflóðahættu.
  • Vinna við snjóframleiðslu.
  • Skýrslugerð og gerð verkferla, grunnþekking á notkun helstu forrita æskileg.
  • Góð skíðakunnátta nauðsynleg.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Alþjóðlegt snjóflóðapróf eða sambærilegt. Æskilegast er CAA Level 1.
  • Grunnmenntun í sjúkraflutningum eða Wilderness first responder þjálfun æskileg.
  • Viðkomandi þarf að vera sterkur skíðamaður og geta ekið snjósleða.
  • Enskukunnátta er skilyrði.
  • Ökuréttindi nauðsynleg.
  • Námskeið vegna meðferðar og notkunar á sprengiefni æskileg.
  • Vinnan fer fram nærri einvörðungu úti við og í öllum veðrum og skilyrðum því er reynsla af útivist og hreysti nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður með tölvupósti brynjar.helgi@hlidarfjall.is og í síma 690-5209

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown