Heilsuvernd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sitt öfluga ráðgjafateymi tengt heilsu- og vinnuverndarþjónustu. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en geta um leið verið hluti af sterku teymi.
Um er að ræða starfshlutfall á bilinu 75-95% þar sem unnið er á dagvinnutíma og er starfsaðstaða í Urðarhvarfi í Kópavogi.
Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og
vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gyða Hauksdóttir fagstjóri hjúkrunarráðgjafar ( gudrungyda@hv.is) eða Sigríður Ólafsdóttir fagstjóri heilsufarsþjónustu ( sigridur@hv.is).

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is