The City of Reykjavik

Hjúkrunarfræðingur í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir

The City of Reykjavik  •  Selma, CA (Onsite)  •  15 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að hjúkrunarfræðingi í okkar teymi til þess að starfa á vettvangi, mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir og veita hjúkrun í þeirra umhverfi þar sem þörfin er mest.

Hjúkrunarfræðingur er staðsettur og starfar innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, þar sem dagleg þjónusta er veitt. Næsta yfirmaður og faglegt bakland er innan SELMU teymis sem er sérhæft teymi innan heimaþjónustu.

Starfsmaður gegnir því lykilhlutverki við að brúa bilið milli heimahjúkrunar og vettvangshjúkrunar og tryggja að einstaklingar fái samfellu í þjónustu.

Um er að ræða starf í dagvinnu og getur starfshlutfall verið 50-100 %.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni

  • Skipuleggja og veita hjúkrunarþjónustu á vettvangi í neyðarskýlum og búsetu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
  • Veita sérhæfða hjúkrunarmeðferð og aðlaga þjónustu að flóknum þörfum
  • Tryggja samfellu í þjónustu og vera tengiliður við heilbrigðisstofnanir og aðra þjónustuaðila
  • Teymisvinna með starfsfólki í málalfokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
  • Skrá meðferð og þjónustu í sjúkraskrá samkvæmt lögum
  • Leiðbeina samstarfsfólki, taka á móti nemum og styðja nýliða

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af hjúkrun fyrir einstaklinga með vímuefnavanda
  • Þekking og reynsla af vettvangsstarfi og geta til þess að vinna í óhefðbundnu, krefjandi umhverfi
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði vinnubrögð, sveigjanleiki og hæfni til að forgangsraða verkefnum
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Þekking á sjúkraskrárkerfi Sögu

Við bjóðum

  • Áhugavert og áhrifamikið starf þar sem enginn dagur er eins
  • Faglegt og hlýlegt teymi sem styður þig í þínu starfi
  • Tækifæri til að vinna á vettvangi og þróa þjónustu í málaflokki sem skiptir máli

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir í gegnum netfangið: anna.gudbjorg.gunnarsdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media