
Hjúkrunarheimilið Skjól óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til starfa sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni.
Miðað er við 20% starfshlutfall en mikilvægt er að viðkomandi geti tekið helgar- og kvöldvaktir.
Skjól er rótgróið, faglegt og öflugt hjúkrunarheimili með reyndu og góðu starfsfólki þar sem 106 íbúar búa. Skjól var fyrsta hjúkrunarheimilið í Reykjavík sem byggt var frá grunni með hjúkrunarrými eingöngu.
Hjúkrunarfræðingar eru lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru höfð að leiðarljós samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.
Lagt er upp úr góðri þverfaglegri samvinnu innan heimilis og hefur viðkomandi fjölmörg tækifæri til þess að vaxa og dafna í starfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Starfið er laust nú þegar og umsóknum verður svarað þegar þær berast.
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Íris Dögg Guðjónsdóttir forstöðumaður á Skjóli iris@skjol.is eða í síma 8520026.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar eru sjálfseignarstofnanir sem starfa samkvæmt heilbrigðislögum til að vinna að málefnum aldraðra.