
Hjúkrunarheimilið Skjól óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til starfa sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði en mikilvægt er að viðkomandi geti tekið helgar- og kvöldvaktir í bland við dagvaktir. Kostur er ef viðkomandi getur verið í háu starfshlutfalli, en ekki skilyrði.
Skjól er rótgróið, faglegt og öflugt hjúkrunarheimili með reyndu og góðu starfsfólki þar sem 106 íbúar búa. Skjól var fyrsta hjúkrunarheimilið í Reykjavík sem byggt var frá grunni með hjúkrunarrými eingöngu.
Í gegnum árin hafa ýmsar breytingar átt sér stað og áskorun hjúkrunarheimila á hverjum tíma er að standast tímans tönn, fylgjast með rannsóknum, uppfæra starfsaðferðir og leiðir í þjónustu og umönnun íbúa og hafa alltaf virðingu og fagmennsku að leiðarljósi. Nýverið hafa verið endurbætur á öllum hjúkrunardeildum heimilisins ásamt því að öll húsgögn hafa verið endurnýjuð.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Hjúkrunarfræðingar eru lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru höfð að leiðarljós samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.
Lagt er upp úr góðri þverfaglegri samvinnu innan heimilis og hefur viðkomandi fjölmörg tækifæri til þess að vaxa og dafna í starfi.
Starfs og ábyrgðarsvið:
Hæfniskröfur:
Boðið er upp á:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Umsóknarfrestur:
Starfið er laust nú þegar og umsóknum verður svarað þegar þær berast.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veita:
Íris Dögg Guðjónsdóttir forstöðumaður á Skjóli iris@skjol.is eða í síma 8520026.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar eru sjálfseignarstofnanir sem starfa samkvæmt heilbrigðislögum til að vinna að málefnum aldraðra.