Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili  •  Onsite  •  19 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hjúkrunarheimilið Eir óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi á heimilisdeild til starfa sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Hjúkrunarfræðingar eru lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.

Lagt er upp úr góðri þverfaglegri samvinnu innan heimilis og hefur viðkomandi fjölmörg tækifæri til þess að vaxa og dafna í starfi.

Starfs og ábyrgðarsvið:

  • Almenn hjúkrun íbúa og vaktstjórn.
  • Skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferðir.
  • Samskipti við íbúa og aðstandendur.
  • Hefur eftirlit með gæðum hjúkrunarþjónustunnar.
  • Tekur virkan þátt í starfsþróun og gæðastarfi.
  • Vinnur við RAI mat, Sögukerfi, Iðunni, Lyfjavaka, Timian, MainManager og eMed.
  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra.

Hæfniskröfur:

  • B.Sc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá Embætti landlækni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptafærni.
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi.
  • Jákvætt viðmót.

Boðið er upp á:

  • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • 36 stunda vinnuviku.
  • Skjól er fjölmennur vinnustaðar með öflugu starfsmannafélagi, við bjóðum upp á íþróttastyrk og niðurgreiddan hádegismat.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar veita:

Eygló Tómasdóttir, forstöðumaður á Eir í eyglot@eir.is eða í síma 522-5798.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

About Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar eru sjálfseignarstofnanir sem starfa samkvæmt heilbrigðislögum til að vinna að málefnum aldraðra.

Industry
Healthcare & Social Services
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Website
eir.is
Social Media