Heilsuvernd

Hjúkrunarfræðingar

Heilsuvernd  •  Onsite  •  4 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hjúkrunarfræðingar

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til framtíðarstarfa á Hlíð og Lögmannshlíð. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja um leið vera hluti af sterku teymi og gjarnan vinna að nýjum hugmyndum og framþróun.

Í boði er dagvinna sem og vaktavinna og starfshlutfall eftir samkomulagi.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Almenn hjúkrunarstörf

Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við Eden hugmyndafræðina, sett markmið og gæðastefnu

Frumkvæði að hagræðingu, faglegri þróun og skipulagningu á þjónustu við íbúa

Þátttaka í þróunarverkefnum

Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar

Menntunar og hæfnikröfur:

Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur

Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum

Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg

Þekking á Eden hugmyndafræðinni æskileg

Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

Góð almenn tölvukunnátta

Um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimili fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Upplýsingar um Heilsuvernd Hjúkrunarheimili má finna á heimasíðunni www.hlid.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Bryndís Björg Þórhallsdóttir, forstöðumaður á Hlíð, bryndisbjorg@hlid.is og Jóhanna Berglind Bjarnadóttir, forstöðumaður á Lögmannshlíð, johannabb@hlid.is.

Einungis er tekið á móti umsóknum á ráðningarsíðu Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis

Heilsuvernd

About Heilsuvernd

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is

Industry
Healthcare & Social Services
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
1987
Website
hlid.is
Social Media