Seltjarnarnesbær

Heimaþjónusta

Seltjarnarnesbær  •  Onsite  •  24 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Félagsþjónusta Seltjarnarnesbæjar óskar eftir að ráða metnaðarfulla og áhugasama einstaklinga í heimaþjónustu. Vinnan fer fram á heimilum einstaklinga. Starfhlutfall er 100% og vinnutími er frá kl. 08:00-15:15.

Markmið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og rjúfa félaglega einangrun þeirra.

Starfssvið

  • Aðstoð við heimilshald og þrif
  • Veita persónulega aðstoð

Hæfniskröfur

  • Æskilegt er að umsækjendur séu orðnir 20 ára (fædd 2006 eða fyrr)
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð þjónustulund og jákvæðni
  • Hæfni til sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæði
  • Tillitsemi, stundvísi, reglusemi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Afsláttur á korti í World Class
  • Sundkort á Seltjarnarnesi
  • Bókasafnskort

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Gilt ökuskírteini er nauðsynlegt ásamt bíl til afnota í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Wioleta Marlena Pietras, wioleta.m.pietras@seltjarnarnes.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026.

Seltjarnarnesbær

About Seltjarnarnesbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown