Heilsuleikskólinn Krógaból óskar eftir að ráða starfsmann í 100% stöðu við skólann. Um er að ræða afleysingastöðu vegna veikinda í 3-6 mánuði með möguleika á áframhaldandi starfi með börnum frá eins til fimm ára. Starfsbyrjun er samkomulag en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Heilsuleikskólinn Krógaból byggir starfið á fjórum meginstoðum, heilsustefnu, lífsleikni, málrækt og frjálsum leik. Með þessar grunnstoðir að leiðarljósi er unnið að aðalmarkmiði skólans sem er að stuðla að heilbrigðri sál í hraustum líkama og að öll börn verði góð og fróð.
Einkunnarorð skólans eru Virðing – vellíðan – vinátta.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://krogabol.is
Starfsmaður leikskóla starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, Aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, starfsmannastefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jórunn Eydís Jóhannesdóttir, skólastjóri í síma 462-7060/868-2380, netfang: jorunn@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026
