Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot - sérkennslustjóri

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Sérkennslustjóri óskast til starfa á Heilsuleikskólann Holtakot.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á bóklegt nám gegnum hreyfingu og leik, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir „Uppeldi til ábyrgðar“.

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu
  • Sinnir einstaka börnum og barnahópum með íhlutun
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Garðabæjar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi (Leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 1. ágúst 2026.

Hlunnindi í starfi

  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn stafsmanna sem búsettir eru í Garðabæ
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri í síma 5502380 eða með því að senda fyrirspurn á ragnhildursk@holtakot.is. Heimasíða leikskólans www.holtakot.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown